Að loknu vetrarmóti 2015
Vetrarmót Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi árið 2015 var haldið helgina 13.-15. nóvember. Mótið heppnaðist afar vel og var mjög uppbyggjandi. Þema mótsins var "fúsir fætur" og fólst hluti af mótinu í vinnu við að skrifa niður vitnisburðinn sinn þannig að hægt væri að flytja hann á c. 3 mínutum. Mikið var um hlátur og gleði á mótinu og óhætt að byrja strax að hlakka til vetrarmóts 2016.
Hér sést hluti af mótsgestum í skógargöngu í Tumastaðarskógi